Hehehe... já Heiðrún mín, róleg ! Ég skal blogga fyrir þig....

En hvað á ég að tala um ??... Hehe ég hef nú fátt annað að spá í þessa dagana en átakið... Og ég er búin að vera að tala um það stanslaust síðasta mánuðinn við ykkur stelpurnar ! Og ég held þið séuð orðnar soooldið þreyttar á því
En OK!

ég skal segja frá því!
Ég semsagt tók þátt í smá Biggest Loser keppni ásamt Þurý vinkonu 5. Janúar, og sú keppni mun vera í gangi fram í apríl.. Þegar ég byrjaði ég var ég 74,6 á vigtinni.. síðasta þriðjudag var ég 71,1, og á föstudaginn var ég 70,5 þannig þetta er spennandi. Síðasta þriðjudag kom í ljós að ég er búin að missa 24 cm af líkamanum í heild.. sem er ágætt sosum, sést smá munur allavega... en ég er í 2. sæti af 10, Þurý er í 1. sæti. Svo núna næsta þriðjudag er verðlauna mæling, og ef ég stend mig vel og verð búin að missa meira en Þurý og kemst í 1. sætið þá mun ég fá pening í verðlaun og get keypt mér ljósakort

hehe... Wish Me Good Luck! En auðvitað mun ég ekki fara í fílu ef Þurý vinnur.. þá vinn ég bara næsta mánuð

því við erum með einstaklings verðlaun mánaðarlega... en já við erum sko 2 lið, 5 í hvoru liði, ég og Þurý erum í bleika liðinu ásamt vinkonum Tanju, stóru systur Þuríðar, og svo er Tanja og hinar 4 vinkonur hennar í bláa liðinu, og einsog staðan er í dag þá er bleika liðið yfir, og í apríl mun vera liða verðlaun.. gaman gaman

Mér er allavega búið að ganga vel, og þetta er minna mál en ég hélt.. mun léttara að hætta að drekka kók en ég hélt.. og ég var vön að poppa á hverju kvöldi, núna í mestalagi 2x í viku og þá poppa ég sjálf í potti með nánast engu salti, örugglega tvöfallt skárra en pop secret t.d. .. Og það að mæta í Curves á þrið, fim, fös og annanhvern - hvern lau er mun minna mál en ég hélt.. + rope yoga á mán og mið, ég var vön að þurfa að leggja mig á hverjum degi, alveg búin á því eftir skóla.. en núna fer ég í ræktina beint eftir skóla, vinna og læra.. og er samt ekki orðin þreytt fyrr en um miðnætti! I feel so much better

OG svo eru fötin að passa mér betur og jafnvel sumar buxur orðnar of víðar.. sem er ýkt gaman ! Þannig þetta er eitt af því besta sem ég hef gert lengi
Ég nenni ekki að tala um ástarmálin mín lengur hérna... tala frekar við ykkur um það undir 4 augu, svona dæmi er of flókið til að blogga um

Ég er allavega bara í skólanum núna, Rope yoga, Curves, vinna og þegar færi gefst, og heimalærdómurinn er búinn, þá hitti ég vinkonurnar og/eða Gísla.. sem er orðið mun minna en áður, en svona er að vera busy...
En jæja.. ég bloggaði

og þetta er í gangi hjá mér núna... Joy Joy..

Mynd bloggsins:









Svona verð ég í Júlí sprangandi um ströndina á La Marina

hehehe...



